Drottningar með hraðpósti
býflugnarækt blómstrar á Íslandi
Viðtal við Matthildi Leifsdóttur, hunangsbónda við elliðavatn
Matthildur Leifsdóttir, hunangsbóndi eða frístundabóndi eins og hún vill sjálf láta kalla sig, sér Grillmarkaðnum fyrir hunangi. Hrefna Sætran heimsótti hana á heimili sitt við Elliðavatn, þar sem hún hefur búið síðustu tólf ár ásamt hestum sínum, hænum og hunangsflugum.
Hvenær byrjaðirðu á býflugnarækt?
Það var fyrir um 11 til 12 árum. Æskufélagi minn kynntist býflugnarækt þegar hann bjó í Svíþjóð. Þegar hann flutti heim tók hann flugurnar sína með sér og fékk að geyma þær hjá mér. Það gekk ekki vel því þær drápust allar með tölu. Næsta sumar fluttum við aftur inn flugur og síðan hefur þetta gengið vel. Núna, í kjölfar kreppunnar, er algjör sprenging í býflugnarækt á Íslandi.
Í hvað notar þú hunangið?
Ég set það út á nánast allan mat; súrmjólk, brauð og ávexti og nota það með ostum. Það er sérstaklega gott með geitarosti og oft ómissandi í sósur. Ég nota hunang líka mikið í eftirrétti. Besta desertsósan er 70-80 prósent súkkulaði brætt í vatnsbaði með hunangi út í. Algjört nammi.
Borðarðu hunang á hverjum degi?
Ég bý mér til te á hverjum morgni, leyfi því að kólna aðeins og set svo hunangið út í. Hunang nýtur sín best þegar það er sett út í eftir matreiðslu því ef það er hitað yfir 40 gráður missir það mörg góð ensím.
Í tilfinningasambandi við býflugur
Er sambandið gott við flugurnar?
Býflugurnar mínar eru eins og gæludýrin mín, ég sýni þeim mikla umhyggju. Ég sit oft úti á sumarkvöldum og horfi á þær fljúga út og inn. Maður lærir svo að sjá og þekkja sínar býflugur frá öðrum flugum. Mínar eru íþróttamannslegar í vextinum, grannar og langar.
Hvað lifir býflugnadrottning í mörg ár?
Hún lifir í fimm til átta ár en varp minnkar á öðru til þriðja ári og þá er best að skipta. Drottningin þarf að vera hraust og verpa mikið. Það er einungis hún sem verpir, hinar eru bara vinnuflugur. Drottningin slítur sér alveg út og við þurfum að skipta reglulega því þær slappast.
Hvernig velur þú drottningu?
Býflugurnar velja hana sjálfar. Ég hef stundum keypt drottningar á netinu. Þá fæ ég þær bara sendar með hraðpósti í umslagi inni í kassa.
Þekkir þú muninn á karl- og kvenbýflugum?
Já, karlarnir eru aðeins stærri og sterklegri að sjá. Karlflugur heita druntar og eina hlutverk þeirra er að eðla sig við drottninguna. Ófrjó egg verða að druntum á vorin meðan frjó egg verða að þernum og drottningum. Kvenflugurnar drepa druntana á haustin og eru svo einar í notalegheitum yfir vetrartímann.
En þær stinga?
Já, og þá deyja þær. Það er mjög mikilvægt að vera rólegur í kringum býflugur. Allar snöggar hreyfingar eru ógnun við þær en þær finna lykt og venjast manni með tímanum.
Lækningarmáttur og ljúfur rafneisti býflugna
Hefur þú verið stungin af býflugu?
Já, mér finnst það vont-gott. Svíður ofboðslega en á sama tíma fer um mann einhver svona rafneisti, eins og maður fái stuð. Stungan er bara vond í fyrstu þegar hún er eins og bruni. Kínverjar hafa notað býflugnastungur í meðferðir, til dæmis gegn liðagigt. Hunang hefur líka mikinn lækningarmátt. Það drepur bakteríur og er græðandi fyrir húð og sár.
Stundið þið annan búskap með býflugnaræktinni?
Við erum með hesta, hænur og einn hana, hund og kött og svo er ég að rækta allt mögulegt. Ég er mikið í gróðrinum og matjurtagarðinum. Ég er líka hesta- og veiðikona, veiði lax og silung. Ég elska að vera úti í náttúrunni og er eins mikið úti á sumrin og ég get.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Ég elska að borða góðan, einfaldan og fallegan mat. Ég er alin upp við sjávarsíðuna og fiskur er eflaust uppáhaldsmaturinn minn. Gufusoðinn þorskhnakki með nýjum kartöflum eða vel verkaður saltfiskur er hátíð. Ég elda alltaf! Við erum aldrei með skyndibita, eldum allt frá grunni.
„Hin vinnan” klukkan tólf
Hvernig líður dæmigerður dagur hjá þér?
Ég vakna um hálf átta, fer í hesthúsið og sé um alla gegningavinnuna. Fæ mér svo hunang með tei og les gömul blöð því við fáum engin blöð hingað. Svo fer ég í hina vinnuna mína klukkan tólf og er þar til fjögur eða lengur. Ég er líka búðarkona í Reykjavík, á skóbúðina 38 þrep.
Kaupirðu stundum hunang úti í búð?
Ég hef ekki þurft að gera það í nokkur ár því býflugurnar hafa verið svo duglegar.
