Hrefna Rósa Sætran, er félagi í kokkalandsliði Íslands, þekkt fyrir að nota hráefni beint frá bændum. Matargerð hennar er stundum lýst sem hefðbundinni íslenskri matargerð með óvæntu og nútímalegu ívafi.
Yfirkokkurinn, Guðlaugur P. Frímannsson lærði í Sjávarkjallaranum og var valinn matreiðslunemi ársins af Matís 2007. Guðlaugur vann á Fiskmarkaðnum og síðan á Texture í London Kiin Kiin í Köben. Báðir þessir staðir skarta Michelin stjörnu. Guðlaugur þykir óvenju skapandi og fjölbreyttur kokkur, enda hefur hann verið í kokkalandsliðinu frá 2009.