Beint frá bónda
Við höfum lagt mikla vinnu í samstarf okkar við bændur landsins og endurspeglast það í matseðlinum. Flest aðalhráefnið er keypt beint frá bónda. Þeir segja okkur hvaða afurðir eru bestar, við meðhöndlum og eldum þær á okkar hátt og þið fáið að njóta samstarfsins.
Við framreiðsluna leitumst við eftir að ná fram enn ríkari tilfinningu fyrir uppsprettu hráefnisins og notum til þess eld, reyk, við og kol.
Úr verður óvænt matargerð þar sem íslensk hefð og nútíminn mætast.

