Lækjargata 2a
Húsið var upphaflega byggt sem kvikmyndahús árið 1920 og hét þá Nýja bíó. Það var stærsta samkomuhús landsins og tók allt að fimmhundruð manns í sæti og var hannað af Finni Torlacius. Kvikmyndahúsið var kallað Nýja bíó til aðgreiningar frá kvikmyndahúsinu sem þegar var í Reykjavík og kallað var Gamla bíó.
Kvikmyndir voru sýndar í húsnæðinu allt til ársins 1987 þegar húsinu var breytt í skemmtistað sem brann árið 1998 og í framhaldi af því var húsið rifið. Lokið var við að reisa nýtt hús á reitnum um mitt árið 2011 og tók nýbyggingin form sitt og yfirbragð að miklu leyti af Nýja bíó sem var tvær hæðir og kjallari en nýbyggingin er þrjár hæðir auk kjallara. Húsið sem reis á reitnum ber greinileg einkenni judendstílsins líkt og fyrirmyndin.
